~Hugarheimur Ragnheiðar~

=*<3 Gleðileg jól og gæfuríkt ár<3=*

Ferðasagan!

Ferðasagan eins og hún var nánast flutt á skólaslitunum. Lára Júlía segir frá.!

Skólaferðalag 2006 ? Ferðasaga

Kæri skólastjóri, kennarar, foreldrar, nemendur og aðrir velunnarar skólans. Lára Júlía heiti ég og ég ætla að segja ykkur stuttlega frá skólaferðalaginu sem við í 10. bekk fórum í. Við lögðum af stað á mánudaginn seinasta eða 29.maí og komum heim í dag. Það er margt sem við erum búin að gera þessa 5 daga og eins og alltaf er skrifuð ferðasaga sem greinir frá því sem á daga okkar dreif.

Á mánudeginum mættum við fyrir utan skólann klukkan hálf átta og lögðum af stað til Fljótstungu í Borgarfirði. Á leiðinni stoppuðum við við Deildartunguhver og síðan við Barnafoss og Hraunfossa þar sem við hittum gamlan White Sox aðdaáanda frá Chicago. Það var sko mikið hlegið að gamla manninum sem fór á kostum, talandi um fallegu konurnar á Íslandi, Rekkjavick og White sox sína. Daníel skemmti sér einstaklega vel með gamla manninum og lýsti fyrir honum skólakerfinu á Íslandi en það var svo hljóðandi:" Sko, first there is ten years in Grunnskóli, then there are four years in Menntaskóli and then there are another four years in Háskóli, so your stuck for life." Við hlógum mikið að þessu og líka þegar Silja hélt að rúta gamla mannsins væri að stinga hann af, hún hljóp auðvitað á eftir rútunni öskrandi:" Nei, Rútan hans er að fara!". Í því kom gamli maðurinn röltandi í rólegheitunum inn í réttu rútuna sína. Eftir þetta héldum við á til Fljótstungu þar sem við skoðuðum rosalega flottan helli með leiðsögumanninum Bjarna og gistum í bústöðunum hans. Má þar nefna að Kristján merkti sér svæði í kofanum hjá Láru og Guðbirni, hann tefldi rækilega við pápann en sá leikur var endurtekinn daginn eftir og sömuleiðis daginn þar á eftir. Í Fljótstungu var líka sunginn afmælissöngur á miðnætti, en það var enginn önnur en Ég. Sem varð 16.ára 30.maí.

Næsta morgun vöknuðum við í miklum spenningi enda átti að snorkla og fara í rafting þann dag. Við snorkluðum í Silfru við Þingvelli og erum einróma um að þetta er eitt það fallegasta sem við höfum séð. Við fengum líka að stökkva af kletti ofan í Silfru. Þaðan var haldið í rafting í Hvítá. Bolvíkingarnir fengu allir að vera saman á bát en Lilja og Sólrún voru fljótar að finna sætasta guide-inn og hoppa upp í bátinn hjá honum ásamt fullt af finnskum krökkum. Lilja var dauðhrædd í rafting en grunur leikur á að hún hafi verið að þykjast til að fá að vera sem næst sæta guide-inum sínum. Það var stórskemmtilegt í rafting þar sem var ærslast í Hvítá og við létum okkur meira að segja gossa fram af stærðarinnar kletti ofan í hana. Eftir rafting fórum við í sund, þar sem Bragi var tekinn fyrir að pissa í sturturnar og meinaður aðgangur að lauginni, kíktum á Gullfoss og Geysi, sáum Strokk gjósa og borðuðum á Hótel Geysi. Um kvöldið fengum við gistingu á Reykhólum þar sem við hittum bolvíkinginn Kalla Hallgríms og hann sýndi okkur skólann á Reykhólum.

 Þriðja daginn var lagt af stað frá Reykhólum og þá haldið til Reykjavíkur. Við heimsóttum engan annan en sjávarútvegsráðherrann bolvíska, Einar K. Guðfinnsson og bauð hann upp á glæsilegar veitingar í sjávarútvegsráðuneytinu. Hann útskýrði starf sitt og hlutverk ráðuneytisins og sýndi okkur stofnunina. Þess má geta að það var sex hæða hringstigi þarna og maður var allringlaður eftir að labba hann. Var ekki lyfta? Kann maður að spurja sig og það var sko lyfta en ótrúlegt en satt þá festist lyftan í sjávarútvegsráðuneyti Íslands. Manni stóð ekki alveg á sama en til allrar hamingju var þetta bara smá hökt og hún fór fljótt af stað aftur. Þegar við vorum orðin alfróð um sjávarútveg og södd og sæl voru teknar nokkrar myndir af okkur með ráðherra og svo heimsóttum við Þjóðminjasafnið og var það að sjálfsöguð fróðlegt. Fyrr um daginn höfðum við fengið þær gleðifréttir að við fengum að fara í Kringluna í smá tíma. Stelpurnar misstu sig flestar í búðunum og Lilja kom til að mynda með fimm poka út úr mollinu. Þegar verslunarferðinni var lokið var ætlunin að fara í Paintball. Það gekk ekki betur en svo að við villtumst þarna í Straumsvíkinni og vorum hálfnuð eða svo til Keflavíkur þegar við gátum snúið við. Á endanum fundum við þó staðinn og skelltum okkur í svita- og olíublauta hermannagalla og skutum litboltum á hvert annað eins og vitlaus værum. Skipt var í rautt lið og blátt lið og eftir sex leiki var staðan jöfn. Í seinustu leikjunum sigraði bláa liðið, mitt lið, og vorum stolt af. Paintball var rosalega skemmtilegt og sérstaklega vegna þess að allir voru jafn góðir þar sem enginn hafði prufað áður. Lilja var meira að segja ánægð með sinn hlut í leiknum þó hún hafi ekki ætlað að þora fyrst. En hún fór á kostum og skaut meira að segja mann. Seinna kom þó í ljós að það var hann Bragi og hann var með henni í liði. En Lilja var samt hæst ánægð. Kannski var það líka vegna þess að hún gómaði sætasta guide-inn þarna eins og í rafting. Allir urðu þreyttir og sveittir og hel aumir eftir þessa forlátu litboltakúlur sem ferðuðust á 160 km hraða svo það var um að gera að skella sér í sund og slappa af og skola af sér skítinn. Margir skemmtu sér í sundi við að telja væna marbletti eftir skotin. En þegar við vorum orðin hrein og endurnærð fórum við og borðuðum dýrindis mat á veitingahúsinu Argentína Steikhús. Bornir voru fram þrír réttir, villisveppasúpa og brauð í forrétt, nautafillet með salati og ljúffengri bakaðri kartöflu og loks bestu súkkalaðiköku sem ég hef á ævinni smakkað, heit og mjúk, borin fram með hindberjum, brómberjum, jarðaberjum og vanilluís. Það löbbuðu sko allir saddir þaðan út og sofnuðu vært í Heiðarskóla í Keflavík þar sem við gistum í boði Kristínar Gunnarsdóttur, fyrrverandi kennara hér í Bolungarvík.

 Þegar við vöknuðum um morguninn var kennsla í fullum gangi í Heiðarskóla og nemendur það virtust spenntir að fá svona gesti en litu eiginlega á okkur eins og við værum hálfgerðar geimverur eða eitthvað og ekki skánaði það þegar við sögðumst vera frá Bolungarvík. "Hvað er það?" En á héldum við og fórum í Go-Kart í Keflavík og var það nú meira en lítið gaman, ég hef sjaldan skemmt mér eins og vel enda var það hún litla ég sem tóka alla strákana og stelpurnar í nefið og setti besta tímann á brautinni þann daginn. Það er vægt til orða tekið að segja að strákarnir hafi verið bitrir yfir að láta stelpu vinna sig í bíló. Eftir Go-Kart fórum við upp í rútu og áttum að fara að fá okkur að borða en þá ætlaði allt um koll að keyra því enginn vildi fara á sama staðinn. Einn vildi fara á Dominos, annar á Kentucky og enn annar á Subway. Það endaði með því að hópurinn skipti sér og fór annar hlutinn á Subway og hinir á Pizza 67. Síðan skelltum við okkur í Bláa lónið og slöppuðum af, eða svona reyndum það. Eins og þið vitið er Bláa lónið mjög gruggugt og það sést ekkert ofan í því. Haldiði þá ekki að strákarnir hafi ekki klætt sig úr sundskýlunum og verið þarna vappandi á sprellanum. Jújú, elstu nemendur skólans, það held ég nú. En það besta er ekki búið, sundskýlan hans Andra flaut í burtu svo Andri greyið varð bara að vera allsber í Bláa lóninu. Sundskýlan fannst svo á endanum til allrar hamingju, en stelpurnar sem fundu hana voru búnar að týna henni aftur. Þær höfðu verið að kasta henni á milli sín.  Andri Fékk þá lánaða aðra skýluna sem Palli var í. Heppinn hann. Ragnheiður og Silja hentu 2 skýlum upp í hraunið og sögðu strákunum að sækja þær. Það munaði rosalega litlu að þeir hefðu gert það en Silja sótti þær fyrir þá. Allir strákarnir ætluðu svo að hefna sín og klæða þær stöllur úr bikiníinu, sem þeir og gerðu. Silja náði nú að halda sér í sínu en Ragnheiður greyið varð berbrjósta í lóninu í smá tíma. Þegar þessu ævintýri var lokið var hoppað upp í rútuna góðu með Kristján Arnarson við stýrið og haldið í átt vestur. Við stoppuðum í Bónus í Borganesi til að versla mat fyrir kvöldið og nokkrir strákar fóru og keyptu sér smokka. Þeir skemmtu sér vel við það í rútunni að troða þeim á hendurnar og yfir höfuðið og ábyggilega á fleiri staði. Við komum vestur í Heydal um tíuleytið í gærkvöldi, grilluðum og spjölluðum og hlógum að páfagauknum Kobba sem fór á kostum, en hann kunni að tala. Það var rosalega fallegt í Heydal og í dag fórum við á hestbak og á kajak í yndislegu veðri.

Ég vil þakka öllum krökkunum fyrir frábæra ferð og auðvitað Sólrúnu og Jónsa í Tungu sem fóru með okkur. Svo má heldur ekki gleyma rútubílstjóranum góða honum Kristjáni og fyrir hönd 10. bekkjar vil ég þakka honum fyrir að nenna að keyra okkur svona fram og til baka. Ég vil líka þakka kennurunum okkar fyrir öll þessi ár í Grunnskóla Bolungarvíkur og tel mig geta sagt að við munum sakna ykkar allra.

Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 1174746
Samtals gestir: 341196
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 22:17:43

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Ragnheiður Sjöfn Reynisdóttir

Afmælisdagur:

18.september(´90)

Staðsetning:

Bolungarvík/Akureyri

Tenglar